Hvetja fólk til að pissa í sturtu

Jóra Jóhannsdóttir

Háskólanemar í Bretlandi hafa verið hvattir til að pissa í sturtu til að spara vatn. Átakið kallast Go with the Flow og er hugarfóstur þeirra Debs Torr og Chris Dobson, nemenda í University of East Anglia (UEA) í Norwich.

Torr og Dobson vilja hvetja alla 15 þúsund nemendur skólans til að taka fyrsta piss dagsins í morgunsturtunni. Dobson, sem er tvítugur, sagði hugmyndina á einu ári geta „sparað nógu mikið vatn til að fylla ólympíusundlaug 26 sinnum.“

Samkvæmt útreikningum Torr og Dobson getur það sparað 720 milljón lítra af vatni árlega ef allir í Bretlandi taka þátt í átakinu. Þá geti það sparað 125 þúsund pund, eða rúmlega 24 milljónir, ef allir í UEA taka þátt. Gert er ráð fyrir því að það að sturta niður einu sinni kosti 2 pens. Því geti hver og einn sem sleppi því að sturta niður einu sinni á dag sparað rúmlega 7 pund á ári.

„Við höfum reiknað þetta út, og þetta verkefni getur haft gríðarmikil áhrif. Að ímynda sér hversu mikil áhrif það getur haft að fá alla í East Anglia, eða jafnvel í öllu Bretlandi, til að breyta morgunvenjum sínum,“ sagði Dobson, í samtali við breska ríkisútvarpið.

Tvíeykið hefur hvatt þá sem taka þátt í átakinu til að segja frá því á Facebook- og Twitter-síðum sínum og hafa boðið þeim fyrstu sem taka þátt verðlaun.

Dobson segir viðbrögðin hafa verið misjöfn, annað hvort elskar fólk hugmyndina eða hatar hana. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka