Katrín á von á öðrum dreng

Vilhjálmur og Katrín eiga von á öðru barni á næsta …
Vilhjálmur og Katrín eiga von á öðru barni á næsta ári. AFP

AFP-fréttaveitan greinir frá því að Vilhjálmur Bretaprins og Katrín eigi von á öðrum dreng á næsta ári. 

Þar segir einnig að Vilhjálmur og Katrín muni halda til New York í næsta mánuði. Þar verða þau meðal annars viðstödd góðgerðarsamkomur og eiga fundi vegna viðskipta. Þá munu þau einnig skoða minnismerkið um World Trade Center.

Þetta verður fyrsta utanlandsferð Katrínar eftir að tilkynnt var að hún væri ófrísk á ný. Hvorugt þeirra hefur heimsótt New York áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert