Sökuð um að nauðga 3 piltum

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Fyrrverandi kennari í Utah, sem saksóknari segir að hafa nauðgað þremur drengjum, er nú sakaður um fleiri brot. Kennarinn, Brianne Altrice, er 35 ára. Hún er nú m.a. einnig sökuð um að hafa sent sautján ára nemanda sínum myndir af brjóstum sínum. 

Í frétt Reuters-fréttastofunnar um málið segir að konan sé fyrrverandi enskukennari við menntaskóla í Salt Lake City. Hún var upphaflega handtekin árið 2013, eftir að sextán ára piltur sagði lögreglu frá því að þau hefðu átt í kynferðissambandi mánuðum saman. Í ljós komu tvö önnur sambærileg mál sem snertu tvo aðra unglingspilta.

„Hún var í valdastöðu og naut mikils trausts drengjanna sem gerir það ómögulegt fyrir fórnarlömbin að veita samþykki sitt,“ segir saksóknarinn í málinu við Reuters.

Konan var rekin frá störfum í febrúar á síðasta ári en þangað til hafði hún verið í leyfi frá störfum eða allt frá því að málið komst upp.

Hún er nú í gæsluvarðhaldi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert