Tók þrjú ungmenni af lífi

Mynd af unga fólkinu sem var myrt í gær. Deah …
Mynd af unga fólkinu sem var myrt í gær. Deah Shaddy Barakat, 23 ára, eiginkona hans, Yusor Mohammad, 21 árs og systir hennar, Razan Mohammad Abu-Salha, 19 ára. Af Twitter

Þrír ungir múslímar, allir úr sömu fjölskyldu, voru skotnir til bana síðdegis í gær á heimili sínu í friðsælu hverfi í Norður-Karólínu. Maður á fimmtugsaldri hefur verið handtekinn grunaður um morðin sem minna helst á aftöku.

Samkvæmt frétt Independent hefur lögregla nafngreint fórnarlömbin: Deah Shaddy Barakat, 23 ára, eiginkona hans, Yusor Mohammad, 21 árs og systir hennar, Razan Mohammad Abu-Salha, 19 ára.

Lögregla var kölluð út eftir að byssuhvellir heyrðust frá fjölbýlishúsinu sem fólkið bjó í við Summerwalk Circle á Chapel Hill. Lögreglan hefur handtekið 46 ára gamlan mann, Craig Stephen Hicks, grunaður um að hafa myrt fólkið af yfirlögðu ráði.

Morðin hafa vakið hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum þar sem fólk hefur birt fjölmargar myndir af fórnarlömbunum þar sem þau sjást við nám og leik. Þar er aftöku þeirra líkt við árásina á ritstjórn Charlie Hebdo í París og aðrir hvetja forseta Bandaríkjanna, Barack Obama og trúarleiðtoga til þess að fordæma árásina.

Barakat var tannlæknanemi við Háskólann í Norður-Karólínu og starfaði auk þess sem sjálfboðaliði hjá samtökum sem veittu börnum í neyð í Palestínu tannlæknaþjónustu. Hann var mikill áhugamaður um knattspyrnu og körfubolta.

Hann var mjög virkur á Twitter og skrifaði í janúar: „Það er svo skelfilega sorglegt að heyra fólk segja að það eigi að drepa gyðinga eða Palestínumenn. Eins og það leysi eitthvað.“

Pazan hafði mikinn áhuga á listum og ljósmyndum og hóf nám í arkitektúr og umhverfishönnun við Háskólann í Norður-Karólínu í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert