Lögregla í New York í Bandaríkjunum fann í dag lík í rústum húss sem hrundi í gassprengingu í borginni á fimmtudaginn. Tilkynnt hefur verið um tvo ófundna einstaklinga eftir sprenginguna sem olli gífurlegu eldhafi.
Þeir sem týndir eru voru báðir staddir á sushiveitingastað í sama húsi og sprengingin varð.
Annar þeirra er Nichloas Figureoa, en hann var nýbúinn að greiða fyrir hádegismat á staðnum er sprengingin varð. Samkvæmt frétt AFP-fréttaveitunnar er hinn aðilinn starfsmaður á veitingastaðnum.
Aðstoðarvarðstjóri lögreglunnar í New York, Lee Jones, sagði í samtali við AFP-fréttaveituna að líkið hefði fundist um klukkan 13 í dag að staðartíma. Ekki hafa verið gefnar frekari upplýsingar um viðkomandi eða hvar líkið fannst.
Alls slösuðust 22 í sprengingunni og eldsvoðanum, þar á meðal sex slökkvi- og lögreglumenn.
Slökkviliðsstjóri New York-borgar sagði að það myndi taka viku að hreinsa svæðið.
Fyrri fréttir mbl.is: