Vilhjálmur Bretaprins hefur fyllt út fæðingarvottorð fyrir dóttur sína, Karlottu Elísabetu Díönu af Cambridge. Vottorðið er birt á Facebook-síðu breska konungsveldisins.
Þar má sjá að stúlkan kom í heiminn 2. maí síðastliðinn á St. Mary sjúkrahúsinu í London. Faðirinn er Bretaprins, móðirin er Katrín Elísabet hertogaynja og Bretaprinsessa.
Dvalarstaður stúlkunnar er sagður vera Kensington-höll.
Vilhjálmur skrifar undir vottorðið í dag, fimmta maí.