Strokufanginn var ölvaður

Rich­ard Matt og Dav­id Sweat.
Rich­ard Matt og Dav­id Sweat. AFP

Strokufanginn Richard Matt var ölvaður þegar hann var skotinn til bana nálægt landamærum Kanada í júnímánuði, að sögn bandarískra yfirvalda.

Samkvæmt niðurstöðu úr krufningu mældist 0,18 prómíll af áfengi í blóði Matts, en samkvæmt lögum í New York er heimilt að hafa allt að 0,08 prómíll af áfengi í blóðinu til þess að mega keyra bíl.

Matt og félagi hans, Richard Sweat, sluppu á ótrúlegan hátt úr Clinton-fangelsinu í Dannemora 6. júní síðastliðinn og gengu lausir í um þrjár vikur. Matt var skot­inn til bana af lög­reglu en Sweat náðist lif­andi. Hann er aftur kominn í fangelsi.

Sweat hef­ur sagt rann­sókn­ar­lög­reglu­mönn­um að Matt hafi verið slæmu formi og drukkið of mikið áfengi á flótt­an­um. Menn­irn­ir rændu áfengi úr veiðikofa sem þeir brut­ust inn í. Þeir urðu ósátt­ir um fimm dög­um áður en Sweat náðist og fóru í sitt­hvora átt­ina. Matt var skotinn til bana í um 25 kíló­metra fjar­lægð frá staðnum þar sem Sweat fannst.

Að sögn yf­ir­valda fundu lög­reglu­menn áfeng­islykt af lík­inu í nokk­urra metra fjar­lægð. Tveimur dög­um seinna skaut lög­reglumaður Sweat rétt hjá landa­mær­um Banda­ríkj­anna og Kan­ada.

Frétt NBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert