Gervihnattamyndir hafa nú staðfest að Bel-hofið sem stóð í fornu borginni Palmyra í Sýrlandi hefur verið eyðilagt. Sameinuðu þjóðirnar greindu frá þessu í dag.
Í síðustu viku var sagt frá því að liðsmenn Ríkis íslams hafi sprengt hofið upp. Þar að auki birtu samtökin myndir sem sýndu sprengiefni inni í hofinu sem er talið vera 2000 ára gamalt.
Fyrr í dag var hinsvegar sagt frá því að stór hluti hofsins stæði enn og var það haft eftir yfirmanni fornleifaverndar í Sýrlandi. Hann sagði að sprengingin hefði verið öflug en að hið 2000 ára gamla hof stæði þó enn að mestu. Hann sagði einnig að enn væri ekki búið að meta þær skemmdir sem urðu því ekki er talið óhætt að fara inn í hofið.
Gervihnattamyndirnar sem birtar voru í dag sýna þó annað. „Við getum staðfest að aðalbygging Bel-hofsins, sem og röð súlna í nágrenninu, hafa verið eyðilögð,“ sagði í yfirlýsingu.
UNOSAT satellite analysis confirms Temple of #Bel #Palmyra #Syria main building destroyed @UNESCO @UrtheCast @UNITAR pic.twitter.com/IZWRN0Tsil
— UNOSAT (@UNOSAT) August 31, 2015