Sex rallí áhorfendur létust

T
T AFP

Sex manns, þar af þunguð kona, létust þegar rallí bíll fór út af veginum og hafnaði inni í hóp áhorfenda í bænum Carral á Norður-Spáni í kvöld.

Í myndskeiði sem sýnt var í spænska sjónvarpinu sést þegar bílinn fór út af veginum í Coruna rallíinu. Slysið varð um átta í kvöld að staðartíma, klukkan 18 að íslenskum tíma. Lögreglan hefur staðfest að fjórar konur hafi látist og tveir karlar. Um 20 manns slösuðust og nokkrir þeirra voru fluttir á sjúkrahús. Tveir þeirra eru taldir í lífshættu.

Unnið er að rannsókn á slysinu en allt bendir til þess að bifreiðinni hafi verið ekið of hratt miðað við aðstæður. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert