Tugir létust í gassprengingu

Mynd frá vettvangi.
Mynd frá vettvangi. AFP

Að minnsta kosti 49 eru látnir eftir gassprengingu á troðfullum veitingastað í Madhya Pradesh héraði á Indlandi í dag. Byggingin tættist í sundur við sprenginguna.

„Við höfum fundið lík 49 manns. Um 35 eru særðir og hafa verið fluttir á nærliggjandi spítala,“ segir Seema Alava, yfirmaður innan lögreglunnar í Jhabuahéraði þar sem sprengingin varð, í samtali við AFP fréttastofuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert