Orlando Bloom heimsótti flóttamannabúðir

Hollywood leikarinn Orlando Bloom heimsótti flóttamannabúðirnar Gevgelija í Makedóníu í gær en hann er góðgerðarsendiherra hjá barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, og var heimsóknin liður í starfi hans.

Bloom, sem er meðal annars þekktur fyrir leik í Lord of the Rings og Pirates of the Caribbean, lék á alls oddi er hann heilsaði upp á börn í flóttamannabúðunum sem eru við landamæri Grikklands.

Þúsundir flóttamanna, þar af margir Sýrlendingar, hafa komið í búðirnar eftir að hafa komið sjóleiðina til Grikklands og þaðan með rútum eða lestum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert