Vestrið velji Tyrkland eða Kúrda

Erdogan (t.v.) í heimsókn í Ekvador í vikunni.
Erdogan (t.v.) í heimsókn í Ekvador í vikunni. AFP

Recep Erdogan, forseti Tyrklands, lýsti í dag reiði yfir heimsókn bandarísks erindreka til bæjarins Kobane í síðustu viku. „Er það ég sem er með ykkur í liði eða hryðjuverkamennirnir í Kobane?“ höfðu tyrkneskir fjölmiðlar eftir honum.

Kobane hefur verið undir stjórn kúrdískra hersveita, YPG, síðan þær frelsuðu bæinn frá umsátri íslamska ríkisins. Bandalag vestrænna þjóða í Sýrlandi hefur unnið náið með YPG síðan árið 2014 og stutt Kúrdana bæði með birgðum og loftárásum.

Fána YPG sveitanna veifað í Sýrlandi í mótmælum gegn sniðgöngu …
Fána YPG sveitanna veifað í Sýrlandi í mótmælum gegn sniðgöngu á YPG í friðarviðræðunum í Genf. AFP

Samstarfið hefur valdið Tyrkjum miklum höfuðverkjum heimafyrir en þeir óttast mjög uppgang Kúrda í eigin landi sem fara fram á sjálfstætt ríki þar líkt og í Írak (og í raun í Sýrlandi síðan borgarastríðið þar braust út). Stjórnmálaarmi YPG, PYD, var meinuð þátttaka í nýlegum friðarviðræðum í Genf eftir að Tyrkir hótuðu að sniðganga þær yrði Kúrdunum boðið.

PKK-samtökin í Tyrklandi hafa háð þar blóðuga baráttu fyrir sjálfstæði Kúrda og eru á lista yfir hryðjuverkasamtök víðast hvar. Erdogan vill meina að flokka eigi samtök Kúrda í Sýrlandi með sama hætti. „Samþykkið þið PKK sem hryðjuverksamtök? Hví flokkið þið því ekki YPG og PYD sem hryðjuverkasamtök líka?“ spurði Erdogan.

Bærinn Kobane var lagður í rúst í bardögum um hann …
Bærinn Kobane var lagður í rúst í bardögum um hann í janúar sl. milli kúrdískra sveita og hryðjuverkamanna íslamska ríkisins. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert