Leigðu á Airbnb og fundu lík

Húsið sem hópurinn leigði er 17 km suður af París.
Húsið sem hópurinn leigði er 17 km suður af París. AFP

Vinahópur sem leigði hús á vefsíðunni Airbnb um eina helgi í frönskum bæ varð heldur betur skelkaður þegar hann fann rotnandi lík af konu í garðinum.

„Líkið fannst við endann á eigninni þar sem hægt er að fara út í skóginn,“ sagði heimildarmaður lögreglunnar og bætti við að líklega hafi konan verið myrt.

Húsið er í bænum Palaiseau, sem er um 17 kílómetrum suður af París. Hópurinn leigði það á hinni vinsælu eignaskiptasíðu Airbnb og ætlaði að eiga eftirminnilega partíhelgi. Vinirnir fundu líkið á laugardeginum, sem dró fyrir vikið mjög úr stemningunni.

Konan var í fötum þegar hún dó en ekki  í skóm. Hún var með hring með stórum steini á fingrinum. Nánari upplýsingar um konuna hafa ekki verið gefnar upp.

Ekki er vitað hvernig hún lést en krufning verður framkvæmd á næstunni.

Yfirheyra átti vinahópinn í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert