Nýr friðarsamningur undirritaður

Kólumbísk yfirvöld og FARC-skæruliðasamtökin munu skrifa undir nýjan friðarsamning í höfuðborg landsins á fimmtudaginn. Þetta kom fram í tilkynningu frá stjórnvöldum nú í kvöld, en áður höfðu yfirvöld og samtökin náð samkomulagi sem var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu í kjölfarið.

Með samkomulaginu er vonast til þess að endir sé bundinn á hálfrar aldar borgarastyrjöld í landinu. 260 þúsund manns hafa verið drep­in í átök­un­um, 6,9 millj­ón­ir hafa yf­ir­gefið heim­ili sín og ekk­ert hef­ur spurst til 45 þúsund manns.

Í þjóðaratkvæðagreiðslunni var mjög mjótt á munum, en niðurstaðan var 50,21% á móti 49,78%. Aðeins munaði 54 þúsund atkvæðum á milli fylkinganna. Helsta atriðið sem íbúar voru ósáttir með var að uppreisnarmönnum verði veitt sakaruppgjöf.

Undirritunin mun fara fram klukkan fjögur að íslenskum tíma á fimmtudaginn.

Ekki eru allir sáttir með friðarsamningana og var þeim mótmælt …
Ekki eru allir sáttir með friðarsamningana og var þeim mótmælt um helgina. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert