Obama ekki í jarðarför Castro

Barack Obama, Bandaríkjaforseti.
Barack Obama, Bandaríkjaforseti. AFP

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, verður ekki viðstaddur jarðarför Fidels Castro, fyrrverandi leiðtoga Kúbu.

Frétt mbl.is: Fidel Castro látinn

Vangaveltur hafa verið uppi um hvort forsetinn verði viðstaddur jarðarförina.

„Forsetinn mun ekki ferðast til að vera viðstaddur jarðarför Fidels Castro, sagði talsmaður Hvíta hússins.

Frétt mbl.is: Sagan mun dæma Castro, segir Obama

Obama hefur leitast við að bæta samskipti Bandaríkjanna og Kúbu. Hann hitti Castro þó ekki í sögulegri heimsókn sinni til Havana, höfuðborgar Kúbu, fyrr á þessu ári.

Castro var níræður þegar hann lést. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert