Verðandi þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trump og sonur hans hafa dreift lygafréttum um pítsustað þar sem vopnaður maður hleypti af skotum í gærkvöldi. Fyrir kosningar dreifði ráðgjafinn lygum um að Hillary Clinton tengdist barnaníðshring og nú vísar sonur hans á samsæriskenningar um byssumanninn.
Pitsustaðurinn Comet Ping Pong í Washington-borg hefur verið fórnarlamb rætinna lyga á netinu sem hófust í kosningabaráttunni vestanhafs og var dreift grimmt af stuðningsmönnum Trump. Hafa eigendur og starfsmenn staðarins jafnvel fengið líflátshótanir vegna þeirra.
Frétt Mbl.is: Skotárás á „pizzagate“-staðnum
Í samsæriskenningum vafasamra vefsíðna og samfélagsmiðlasíðna þeirra á staðurinn að vera skálkaskjól barnaníðshrings Clinton og fleiri demókrata. Það á að vera á meðal þess sem kom fram í tölvupóstum John Podesta, kosningastjóra Clinton, sem var stolið og lekið í kosningabarátunni. Notuðu þeir sem dreifðu samsæriskenningunni myllumerkið #pizzagate á Twitter.
Tæplega þrítugur karlmaður var handtekinn eftir að hann hleypti af skotum á pítsustaðnum í gærkvöldi en hann sagðist vera að „rannsaka“ sjálfur sannleiksgildi þessara fullyrðinga. Engan sakaði.
Eftir uppákomuna í gær tísti Michael Flynn yngri, sonur fyrrverandi undirhershöfðingjans Michael Flynn sem Trump hefur skipað sem þjóðaröryggisráðgjafa sinn: „Þangað til það hefur verið sannað að #pizzagate sé rangt þá verður það áfram frétt. Vinstrimenn virðast gleyma #Podestatölvupóstunum og mörgum „tilviljunum“ sem tengjast þeim,“ skrifaði Flynn yngri sem hefur verið ráðgjafi föður síns.
Vísaði sonurinn á Twitter-síðu manns sem lýsir sér sem verkefnastjóra sérverkefna hjá samtökum sem nefnast Citizens4Trump. Sá heldur því fram að uppákoman með byssumanninn á Comet Ping Pong hafi í raun verið leynileg aðgerð. Byssumaðurinn hafi verið leikari og tilgangurinn með uppákomunni hafi verið að rýra trúverðugleika síðna sem dreifðu samsæriskenningunni um staðinn, að því er kemur fram í frétt Politico.
Frétt Mbl.is: Pítsustaður fórnarlamb lygafrétta
Netverjar hafa jafnframt bent á að Flynn sjálfur hafi dreift samsæriskenningum sem tengjast pítsustaðnum rétt fyrir kosningar. Þannig dreifði hann lygafrétt um að lögreglan í New York hefði fundið ný sönnunargögn sem bendluðu Clinton-hjónin við fjölda glæpa, þar á meðal barnaníð. Þær kenningar voru rakalausar með öllu.
U decide - NYPD Blows Whistle on New Hillary Emails: Money Laundering, Sex Crimes w Children, etc...MUST READ! https://t.co/O0bVJT3QDr
— General Flynn (@GenFlynn) November 3, 2016