Sýrlenskir uppreisnarmenn í austurhluta Aleppo hafa óskað eftir fimm daga vopnahléi. Vilja þeir með því að óbreyttum borgurum gefist færi á því að yfirgefa borgina en hörð átök hafa geisað undanfarnar vikur og hefur stjórnarherinn nú náð um 75% af austurhluta borgarinnar á sitt vald.
„Það ætti annaðhvort að vernda óbreytta borgara eða hleypa þeim á svæði þar sem þeir lifa ekki undir miskunn Assad og hans fylgismanna,“ sagði í yfirlýsingu uppreisnarmanna.
Uppreisnarmenn segja að almenningur sé í mikilli hættu og þeir styðji aðgerðir sem lini þjáningar þeirra. Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kanada, Ítalía og Þýskaland hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem krafist er vopnahlés á stundinni til að hægt verði að aðstoða óbreytta borgara.
Sýrlenska ríkisstjórnin hefur útilokað frekari vopnhlé og Rússar hafa kallað uppreisnarmennina sem eftir eru í Aleppo hryðjuverkamenn.
Tugir þúsunda óbreyttra borgara eru enn í austurhluta Aleppo.