Forseti Filippseyja, Rodrigo Duterte, hefur hótað því að henda spilltum embættismönnum úr þyrlu og heldur því einnig fram að það væri ekki í fyrsta skipti sem slíkt gerðist.
„Ef þú ert spilltur þá mun ég ná í þig í þyrlu og mun henda þér út á leiðinni til Manila,“ sagði Duterte í ræðu sem hann hélt í norðurhluta Filippseyja í gær. Hann sagði einnig frá því hvernig hann hafði hent meintum ræningja úr þyrlu þegar Duterte var borgarstjóri í Davao.
„Ég hef gert þetta áður, af hverju ætti ég ekki að gera það aftur?“ bætti Duterte við.
Áður hafði komið fram í frétt AFP að Duterte hefði lagt ríka áherslu á að dauðarefsing yrði tekin upp að nýju í blóðugu stríði hans gegn glæpamönnum sem kostað hefur um 5.300 manns lífið síðan Duterte tók við sem forseti landsins síðasta sumar.