Fjölskylda stúlku sem var rænt fyrir rúmum 18 árum felldi gleðitár þegar hún komst að því að hún væri á lífi. Stúlkunni var rænt af fæðingardeildinni á spítala í Flórída í Bandaríkjunum árið 1998, af konu sem hún hélt að væri móðir sín.
Kamiyah Mobley, sem var rænt í júlí árið 1998, fannst á lífi eftir ábendingu frá almenningi. Yfirvöld í Suður-Karólínu hafa ákært hina 51 árs gömlu Gloriu Williams fyrir mannrán. Stúlkan hefur nú sett sig í samband við fjölskyldu sína.
Amma stúlkunnar segir það hafa verið einstaka tilfinningu að frétta að barnabarnið hennar væri á lífi og liði vel. „Ég felldi gleðitár og líður svo vel að vita að hún er í lagi og lítur vel út,“ sagði Velma Aiken, amma stúlkunnar, í samtali við BBC-fréttastofuna, og bætti við að hún hefði alltaf haft það á tilfinningunni að barnabarnið hennar væri á lífi og liði vel. „Við héldum bara áfram að biðja, vona og trúa.“
Stúlkan er við góða heilsu en samkvæmt fregnum lítur hún út eins og „venjuleg 18 ára stelpa“.
Mobley var ekki nema átta klukkustunda gömul þegar kona, sem þóttist starfa á spítalanum, rændi henni. Konan sagði móður Mobley að barnið væri með hita og það þyrfti að kanna ástand hennar. Hún tók barnið frá móðurinni og hvarf.
Frétt mbl.is: Fannst á lífi 18 árum síðar