Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að vinna við að reisa múr á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó hefjist „fljótlega, langt á undan áætlun“. Þetta kom fram í ræðu sem hann hélt í dag.
Í ræðunni , sem hann hélt á viðburði íhaldsmanna, hét hann því að almenningur í Bandaríkjunum verði ávallt í fyrsta sæti og að byggður verði „glæsilegur landamæramúr“, að því er kemur fram í frétt BBC.
Forsetinn kvaðst einnig ætla að leggja áherslu á að „koma slæmu fólki út úr þessu landi“.
Áheyrendur hrópuðu „USA, USA, USA“ þegar hann ávarpaði þá í Maryland.
„Við munum byggja múrinn,“ sagði Trump.
„Satt best að segja hefst vinnan mjög fljótlega. Langt á undan áætlun. Þetta er langt, langt, langt á undan áætlun.“
Ummæli Trumps komu einum degi eftir að utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Rex Tillerson, og John Kelly, heimavarnarráðherra Bandaríkjanna, hittu mexíkóska kollega sína í Mexíkóborg.
Hvorugur þeirra minntist á byggingu múrsins á blaðamannafundi að loknum fundarhöldum þeirra.