Hótanir hafa borist alríkisdómaranum Derrick Watson á Hawaii í kjölfar þess að hann stöðvað framgang seinni tilskipunar Donalds Trump Bandaríkjaforseta um ferðabann. Þetta hefur fréttastofa CNN eftir bandarísku alríkislögreglunni FBI.
Líkt og þekkt er orðið úrskurðaði Watson í lögsókninni gegn tilskipun forsetans, að miklar líkur væru á að bannið myndi valda óafturkræfum skaða ef það fengi framgöngu.
Allt frá því að úrskurðurinn féll hafa hótanir borist Watson í gegnum skilaboð en Michele Ernst, talskona alríkislögreglunnar, segir stofnunina vera meðvitaða um ástandið og kveðst reiðubúin til að bjóða fram aðstoð sína vegna málsins. Vill alríkislögreglan þó ekki gefa upp neinar frekari upplýsingar um eðli hótananna að svo stöddu en rannsókn málsins er í gangi og er það litið alvarlegum augum.
Dómstóllinn í Honolulu, höfuðborg Hawaii-ríkis, var fyrstur þriggja dómstóla til að úrskurða um bannið en alríkisdómstólar í tveimur ríkjum til viðbótar, Washington og í Maryland, hafa jafnframt tekið málið fyrir.
Úrskurðurinn hafði það í för með sér að annar kafli tilskipunarinnar, sem lýtur að því að banna ríkisborgurum Írans, Líbíu, Sómalíu, Súdan, Sýrlands og Jemen inngöngu í landið í 90 daga, tók ekki gildi. Þá tók 6. kafli tilskipunarinnar ekki heldur gildi en honum var ætlað að stöðva inngöngu flóttamanna í landið í 120 daga.
Trump hefur sagt ferðabannið nauðsynlegt til að verja öryggi Bandaríkjanna og halda öfgamönnum í burtu. Fyrsta tilraun hans til að setja á ferðabann, í janúar síðastliðnum, meinaði ríkisborgurum sjö ríkja þar sem múslimar eru í meirihluta inngöngu í landið.
Trump sendi Watson tóninn í ræðu sem hann flutti í Nashville í síðustu viku þar sem hann lýsti yfir vonbrigðum sínum með að dómarinn hafi stöðvað framgang málsins. „Þetta er að mati margra fordæmalaus yfirgangssemi dómstólsins,“ sagði Trump.