Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að halda innblásna ræðu um íslamska trú í fyrirhugaðri heimsókn sinni til Sádi-Arabíu.
Hvíta húsið greindi frá þessu í dag.
„Hann mun hitta og snæða hádegisverð með leiðtogum yfir fimmtíu múslimaríkja þar sem hann mun flytja innblásna, beinskeytta ræðu um þörfina á því að takast á við öfgafulla hugmyndafræði og um vonir forsetans um friðsamlega sýn hvað varðar íslam,“ sagði H.R. McMaster þjóðaröryggisráðgjafi.