Lík sjö bandarískra sjóliða sem var saknað eftir að bandaríski tundurspillirinn USS Fitzgerald rakst á gámaflutningaskip skammt undan vesturströnd Japans eru fundin.
„Leitinni og björgunarstarfinu er lokið,“ sagði aðmírállinn Joseph Aucoin.
Hann bætti við að mikið vatn hefði flætt inn í svefnálmur áhafnarinnar við áreksturinn, sem varð klukkan 2.20 um nóttina á meðan meirihluti áhafnarinnar svaf.
Nokkrir slösuðust í árekstrinum, þar á meðal sjóliðsforingi herskipsins.