Clarita Ghavimi hefur loks hitt Luca Branislav, manninn sem bjargaði henni úr Grenfell-turninum í London í síðustu viku.
79 eru taldir af eftir eldsvoðann mikla.
Ghavami og Branislav bjuggu bæði í turninum er eldurinn kom upp. Hann var að flýja niður af 11. hæð hússins er hann bankaði á dyr Ghavami. „Ég opnaði hurðina og þú greipst mig,“ sagði hún á endurfundum þeirra. „Ég komst ekki út.“
Branislav tók Ghavimi á öxl sína og bar hana út úr brennandi húsinu. „Þú áttir erfitt með andardrátt. Þú varst í miklu áfalli,“ sagði hann við hana.
Ghavimi grét er hún hitti bjargvætt sinn og átti erfitt með að sleppa af honum takinu.
Þau slógu þó á létta strengi er þau gengu saman út götuna þar sem þau hittust. „Viltu að ég beri þig...?“ sagði Branislav léttur í bragði.
Svo hlógu þau bæði.