Æðsti dómstóll Indlands hefur lagt bann við því að karlmenn geti fengið skilnað með hraði frá konum sínum þar sem slíkir skilnaðir brjóti gegn stjórnarskrá landsins.
Indland er eitt fárra ríkja í heiminum þar sem karlar sem eru múslimar geta skilið við eiginkonu sína á nokkrum mínútum. Það eina sem þeir þurfa er að að segja orðið talaq (skilnaður) þrisvar.
Slíkir skilnaðir hafa enga trúarlega þýðingu og brjóta gegn stjórnarskrárvörðu siðferði, segir í dómi hæstaréttar. Fimm dómarar eru í hæstarétti við málflutninginn og er enginn þeirra sömu trúar. Einn er hindúi, einn síki, einn kristinn, einn zaraþústratrúar og sá fimmti múslimi.
Í dómi þeirra segir að það sé augljóslega gerræðisleg ákvörðun að heimila manni að rjúfa hjónaband vegna kenja og duttlunga viðkomandi. Það sem þyki synd samkvæmt einhverjum trúarbrögðum hefur ekki gildi fyrir lögum, segja þeir.
Ein þeirra sem hefur gagnrýnt slíka skyndiskilnaði er Shayara Bano, 35 ára tveggja barna móðir. Í viðtali við BBC lýsir hún því þegar hún heimsótti foreldra í Uttarakhand-héraði og leitaði sér lækninga. Á meðan hún dvaldi þar í október 2015 fékk hún bréf frá eiginmanninum sem tilkynnti henni að hann væri að skilja við hana. Síðan þá hefur hún ekki getað náð sambandi við eiginmann sinn til 15 ára en hann býr í borginni Allahabad.
„Hann slökkti á símanum sínum og mér tókst ekki að ná sambandi við hann,“ segir hún í viðtali við BBC. Hún segir að þetta hafi haft ömurleg áhrif á líf barna þeirra í kjölfarið. Í fyrra sendi hún hæstarétti bréf þar sem hún krafðist þess að slíkir skyndiskilnaðir yrðu bannaðir. Enda heimili þeir múslimum að koma fram við konur sínar eins og búpening.
Þrátt fyrir að skyndiskilnaðir hafi verið stundaðir áratugum saman er ekkert minnst á þá í saria-lögum né Kóraninum. Fræðimenn í íslömskum fræðum segja að í Kóraninum sé nákvæmlega útlistað hvernig megi standa að skilnaði. Ferli sem taki þrjá mánuði svo hjón fái tíma og næði til þess íhuga og að ná sáttum.
Aðgerðarsinnar segja að flest múslimalönd, svo sem Pakistan og Bangladess, hafi bannað slíka skyndiskilnaði en þeir séu enn leyfðir á Indlandi.