Að minnsta kosti 21 flóttamaður drukknaði og 15 manns er saknað eftir að bát hvolfdi með um 70 manns um borð í Svartahafi við strendur Tyrklands, að sögn strandgæslunnar. Um 40 flóttamönnum var bjargað. Talið er að flestir séu frá Írak og voru þeir á leið til Rúmeníu.
Óléttri konu var bjargað úr hafinu en hún missti barnið þegar á spítalann var komið.
Bátnum hvolfdi um 130 kílómetra austur af Istanbúl. Veðrið var mjög slæmt á þessum slóðum.