Talsmaður Evrópusambandsins sagði að það væri „skelfingu lostið“ eftir að maltneski blaðamaðurinn Daphne Caruana Galizia lést í gær fyrir tilstilli bílasprengju.
Daphne Caruana Galizia sakaði stjórnvöld á Möltu um spillingu en hún hafði fjallað ítarlega um Panamaskjölin og tengsl ráðamanna við aflandsfyrirtæki.
„Við erum skelfingu lostin vegna þess að virtur maltneskur blaðamaður, Daphne Caruana Galizia, lést í gær í því sem virðist hafa verið skipulögð árás,“ sagði Margaritis Schinas, talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
„Þetta er hræðilegur atburður sem þarf að rannsaka. Réttlætið þarf að ná fram að ganga,“ bætti Schinas við.
Joseph Muscat, forsætisráherra Möltu, sagði morðið villimannslegt og sagðist ekki una sér hvíldar fyrr en málið hefði verið rannsakað til hlítar.
Eiginkona Muscats var meðal þeirra sem sakaðir voru um spillingu, en Muscat sjálfur hefur alltaf neitað því að hafa gert nokkuð rangt og hét því að segja af sér ef í ljós kæmi að fjölskylda hans ætti leynilega aflandsreikninga líkt og Galizia hafði fullyrt.