Páfinn biður fyrir foreldrum Alfies

Frans páfi var djúpt snortinn þegar hann heyrði af andláti …
Frans páfi var djúpt snortinn þegar hann heyrði af andláti Alfies. AFP

Frans páfi segist vera djúpt snortinn yfir fregnunum af andláti Alfie Evans.

Alfie lést aðfaranótt laugardags eftir hetjulega baráttu við taugahrörnunarsjúkdóm sem hann greindist með sjö mánaða gamall. Alfie var tæplega tveggja ára þegar hann lést.

Alfie Evans lést á laugardag, rétt tæplega tveggja ára gamall. …
Alfie Evans lést á laugardag, rétt tæplega tveggja ára gamall. Hann var aðeins sjö mánaða þegar hann greindist með taugahrörnunarsjúkdóm. Ljósmynd/Kate James

For­eldr­ar Al­fies börðust fyr­ir því að fá hann flutt­an á Bamb­ino Gesu-sjúkra­húsið í Róm en sjúkra­húsið er rekið af Páfag­arði.Yfirvöld á Ítalíu veittu Alfie ítalskan ríkisborgararétt til að tryggja að hann myndi hljóta réttindi til að fá læknisþjónustu í landinu. Áður en hann lést hafði hann verið meðvit­und­ar­laus í ár og lækn­ar töldu hann ekki hafa heilsu til að ferðast. Slökkt var á öndunarvél Alfies á mánudaginn fyrir rúmri viku samkvæmt dómsúrskurði.

„Ég bið sérstaklega fyrir foreldrum hans á meðan Guð almáttugur umvefur hann sínum mjúku örmum,“ skrifar páfinn á Twitter-síðu sinni.

Páfinn hafði átt í nánum tengslum við fjölskylduna. Faðir Alfies, Tom Evans, átti fund með Frans páfa 18. apríl þar sem hann bað páfa um að bjarga lífi drengs­ins. Síðar sama dag talaði páfi um að Guð væri sá eini sem réði för þegar kæmi að lífi. Það væri okk­ar hlut­verk að gera allt sem í okk­ar valdi stæði til þess að vernda líf.

Saga Alfies hefur snert marga og minnist fjöldi fólks hans …
Saga Alfies hefur snert marga og minnist fjöldi fólks hans í Bretlandi, og víða um heim. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert