„Ekki treysta Bandaríkjunum“

Ali Khamenei, erkiklerkur og æðsti ráðamaður Írans.
Ali Khamenei, erkiklerkur og æðsti ráðamaður Írans. AFP

Ali Khamenei, erkiklerkur og æðsti ráðamaður Írans, segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi gert mistök með að draga Bandaríkin út úr kjarnorkusamkomulagi sexveldanna svonefndu.

„Ég hef sagt frá upphafi: Ekki treysta Bandaríkjunum,“ sagði Khamenei í ávarpi sem hann beindi beint að Trump. BBC greinir frá. 

Kjarn­orku­sam­komu­lagið við Íran var und­ir­ritað árið 2015 af ríkjunum fimm sem hafa neitunarvald í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna (Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kína og Rússland), auk Þýskalands og fel­ur í sér að dregið er úr refsiaðgerðum gegn Íran gegn því að þarlend stjórn­völd hætti til­raun­um til þess að koma sér upp kjarna­vopn­um tíma­bundið.

Óvissa ríkir um framtíð samkomulagsins. Khameini hefur hvatt írönsku ríkisstjórnina til að ræða ítarlega við Evrópuríkin sem eiga aðild að samkomulaginu áður en því verður fram haldið.  

Trump hef­ur ít­rekað gagn­rýnt kjarn­orku­sam­komu­lagið sem und­ir­ritað var af for­vera hans í embætti, Barack Obama, og lýst yfir vilja sín­um til þess að rifta því. Leiðtog­ar Evr­ópu­ríkja hafa hins veg­ar lagt áherslu á mik­il­vægi þess að viðhalda samkomulaginu.

Segja samkomulagið ekki dautt

Utanríkisráðherra Frakklands, Jean-Yves Le Drian, segir samkomulagið ekki dautt og utanríkisráðherra Bretlands, Boris Johnson, segir að Bretland hafi ekki í hyggju að segja skilið við samkomulagið. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segir að hún muni gera allt sem í hennar valdi stendur til að fá Íran til að standa við skuldbindingar sínar í framtíðinni.

Hassan Rouhani, forseti Írans, hefur gefið í skyn að hann muni beita sér fyrir því að bjarga samkomulaginu. Rouhani var við völd þegar samkomulagið var undirritað fyrir þremur árum og þykir hann vera hófsamur umbótasinni. Rouhani segir hins vegar að tíminn sé naumur og Íran­ar kynnu að hefja kjarn­orku­áætlun sína að nýju með því að „auðga meira úran en áður“.

Hassan Rouhani, forseti Írans.
Hassan Rouhani, forseti Írans. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert