Von der Leyen viðurkennir hægagang

Ursula von der Leyen.
Ursula von der Leyen. AFP

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur viðurkennt að sambandið hafi verið of lengi að samþykkja bóluefni við Covid-19.

„Við erum ekki á þeim stað þar sem við viljum vera,“ sagði hún í ræðu á Evrópuþinginu.

Von der Leyen var á þinginu gagnrýnd af þingmönnum fyrir hægagang af hálfu ESB við að útvega bóluefni.

Hún sagðist samt sannfærð um að ákvörðunin um að panta bóluefni í sameiningu hafi verið sú rétta í stöðunni, að því er BBC greindi frá.

Bólusetning við Covid-19 í Berlín.
Bólusetning við Covid-19 í Berlín. AFP

Framkvæmdastjórn ESB hefur verið gagnrýnd fyrir það hversu langan tíma hefur tekið að útvega bóluefni. Áætlun þess efnis var samþykkt í júní í fyrra. Samið var um kaup á bóluefnum fyrir hönd þeirra ríkja sem eru í ESB.

Seinkun hefur orðið á bóluefnum frá framleiðendum, þar á meðal Oxford-AstraZeneca og Pfizer-BioNTech.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert