Sprengingar og skorhríð á sjúkrahúsi í Kabúl

Frá Kabúl, höfuðborg Afganistan.
Frá Kabúl, höfuðborg Afganistan. AFP

Nítján manns hið minnsta er látin og um fimmtíu særðir eftir að árás á sjúkrahús í Kabúl í Afganistan fyrr í dag. 

Starfsmaður heilbrigðisráðuneytis Afganistan staðfesti að um tvær sprengingar og skothríð væri að ræða, við fréttastofu AFP. 

„Nítján látnir og um fimmtíu særðir hafa verið fluttir á önnur sjúkrahún í Kabúl,“ sagði starfsmaðurinn sem óskaði eftir nafnleynd í samtali við AFP.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert