Segja 25 þúsund rússneska hermenn hafa fallið

Rússneskur hermaður í úkraínsku borginni Maríupol í fyrra.
Rússneskur hermaður í úkraínsku borginni Maríupol í fyrra. AFP/Alexander Nemenov

Um 25 þúsund rússneskir hermenn hafa fallið í Úkraínu síðan Rússar réðust inn í landið í fyrra. Rannsókn breska ríkisútvarpsins, BBC, leiddi þetta í ljós.

Þetta eru fjórum sinnum fleiri hermenn en rússnesk stjórnvöld hafa gefið upp.

BBC í Rússlandi og rússneska vefsíðan Mediazona rannsökuðu ljósmyndir af gröfum hermanna, færslur á samfélagsmiðlum og fréttir í Rússlandi og komust að þessari niðurstöðu.

Í upphafi innrásarinnar í Úkraínu féllu aðallega vel þjálfaðir atvinnuhermenn. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að núna falli aðallega eldri hermenn með litla þjálfun að baki.

Hermennirnir hafa margir hverjir komið úr fangelsum fyrir tilstuðlan málaliðahópsins Wagner.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert