Morðingi George Floyd stunginn í fangelsi

Derek Chauvin árið 2021.
Derek Chauvin árið 2021. AFP/Fangelsismálayfirvöld í Minnesota

Derek Chauvin, bandaríski lögreglumaðurinn sem myrti George Floyd árið 2020, var stunginn í fangelsi í Tuscon Arizona í gær þar sem hann afplánar rúmlega 22 ára fangelsisdóm fyrir morðið á Floyd.

Morðið átti sér stað í Minnestota-ríki sumarið 2020. Chau­vin hélt hné á hálsi Floyds í tæp­ar tíu mín­út­ur, með þeim af­leiðing­um að hann kafnaði. Í kjölfarið brutust út hörðu mótmæli víða um Bandaríkin vegna of­beldi í garð svartra af hálfu lög­regl­unn­ar. 

Í tilkynningu frá fangelsismálayfirvöldum í Bandaríkjunum kemur fram að ráðist hafi verið á ónefndann fanga í fangelsinu í Tuscon klukkan 12:30 að staðartíma. Einstaklingurinn var sendur á sjúkrahús í nágrenni fangelsisins til frekari meðferðar eftir að fangaverðir höfðu reynt endurlífgunartilraunir.

Samkvæmt heimildum New York Times lifði Chauvin árásina af.  

AP-fréttaveitan greinir frá því að enginn starfsmaður hafi særst og búið sé að upplýsa bandarísku alríkislögregluna (FBI) um árásina. 

Í júní á þessu ári voru birtar niðurstöður rannsóknar á morðinu á Floyd þar sem kom fram að lög­regl­an í Minn­ea­pol­is í Minnisota mis­mun­i minni­hluta­hóp­um og beit­i of miklu valdi. Rannsóknin tók fyrir atvik bæði fyr­ir og eft­ir and­lát Floyds. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert