Yfir 100 látnir eftir jarðskjálfta í Kína

Björgunarsveitarmenn leita að fólki í húsarústum í þorpinu Daheija í …
Björgunarsveitarmenn leita að fólki í húsarústum í þorpinu Daheija í Gansu-héraði. AFP

Að minnsta kosti 118 manns eru látnir og mörg hundruð til viðbótar slasaðir eftir að mannskæðasti jarðskjálfti í áraraðir reið yfir í norðvesturhluta Kína.  

Ráðamenn í héraðinu Gansu segja að skjálftinn, sem varð skömmu fyrir miðnætti og mældist um 6 að stærð, hafi orðið að minnsta kosti 105 að bana og slasað næstum 400 manns.

Ónýtt hús í þorpinu Dahejia.
Ónýtt hús í þorpinu Dahejia. AFP

Til viðbótar létust 13 manns, 182 slösuðust og 20 er saknað í borginni Haidong í nágrannahéraðinu Qinghai, að sögn ríkisfjölmiðilsins CCTV.

Skjálftinn skemmdi þúsundir heimila og hljóp fjöldi íbúa út á götur.

Fólk hélt á sér hita utandyra eftir skjálftann í Gansu-héraði.
Fólk hélt á sér hita utandyra eftir skjálftann í Gansu-héraði. AFP

Þetta er mannskæðasti jarðskjálfti í Kína síðan að minnsta kosti árið 2014 þegar yfir 600 manns fórust í héraðinu Yunnan í suðvesturhluta Kína.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert