Lítill drengur festist inni í leiktæki

Þriggja ára áströlskum dreng, sem tókst að klifra inn í „Hello Kitty”- leiktæki og virtist engan áhuga hafa á því að fara þaðan út, var bjargað af lögreglunni í ríkinu Queensland.

Glerið á boxinu, sem var fullt af leikföngum, var brotið til að hægt væri að sækja drenginn, Ethan að nafni.

Hann hafði klifrað inn í leiktækið í gegnum lúgu fyrir leikföngin.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert