Biden kallar Pútín brjálaðan tíkarson

Joe Biden hefur verið ófeiminn við að gagnrýna Vladimír Pútín …
Joe Biden hefur verið ófeiminn við að gagnrýna Vladimír Pútín opinberlega. AFP

„Við höfum brjálaða tíkarsyni eins og Pútín, og aðra, og við þurfum alltaf að hafa áhyggjur af kjarnavopnaátökum, en tilvist mannkyns stafar ógn af loftslaginu.“

Þetta sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti á fjáröflunarviðburði í San Francisco í gær.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Biden gagnrýnir Vladimír Pútín Rússlandsforseta opinberlega frá því hann skipaði fyrir um innrás hers síns í Úkraínu fyrir tveimur árum.

Nýjar refsiaðgerðir kynntar

Áður hefur Biden kallað Pútín „stríðsglæpamann“ og „slátrara“.

Dmitrí Peskov, talsmaður Pútíns, segir ummæli Bidens vera bandarísku þjóðinni til skammar.

Á morgun munu Bandaríkin kynna nýjar refsiaðgerðir gegn Rússlandi og á með því að bregðast við fráfalli stjórnarandstæðingsins Alexeis Navalní í rússnesku fangelsi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert