Heimilt að aka um Múlann í samráði við lögreglu

Vegurinn um Ólafsfjarðarmúla.
Vegurinn um Ólafsfjarðarmúla. mbl.is/Kristján

Vegagerðin hefur leyft umferð um Ólafsfjarðarmúla, en aksturinn er háður leyfi frá lögreglunni á Ólafsfirði eða Dalvík. Enn er verið að hreinsa veginn, en þar er mikið verk framundan, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Vegurinn mun vera mikið skemmdur.

Lítið rigndi á Ólafsfirði í nótt, og að sögn lögreglunnar þar er vatnið sem þar flæddi inn í fjölda húsa í gríðarlegu úrhelli í fyrrnótt og gær eitthvað tekið að sjatna, þó ekki sjáist mikill munur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert