Giroud yfirgefur Milan

Olivier Giroud kveður Ítalíu.
Olivier Giroud kveður Ítalíu. AFP/GABRIEL BOUYS

Franski framherjinn, Olivier Giroud, hefur ákveðið að fara frá AC Milan að tímabilinu loknu. Giroud gengur til liðs við Los Angeles FC í MLS-deildinni í Bandaríkjunum.

Giroud hefur leikið með AC Milan frá árinu 2021 en hann gekk til liðs við ítalska stórveldið frá Chelsea. Giroud er orðinn 37 ára gamall en skoraði engu að síður fjórtán mörk og lagði upp átta í 33 leikjum fyrir Milan í ítölsku A-deildinni á tímabilinu.

AC Milan hafnaði í öðru sæti deildarinnar, átján stigum á eftir nágrönnum sínum í Inter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert