Áhaldageymsla vinnuskólans á Akranesi ónýt eftir bruna

mbl.is/Ólöf Dómhildur og Íris Jana

Áhaldageymsla vinnuskólans á Akranesi er talin ónýt eftir að eldur kviknaði þar. Sláttuvélar og orf voru geymd í húsinu og eitthvað af bensíni samkvæmt lögreglunni á Akranesi. Mikill eldur logaði því í húsinu og brotnuðu rúður í nálægu húsi vegna hitans. Eldurinn kom upp um klukkan 16 en slökkviliði hafði tekist að slökkva hann stundarfjórðungi fyrir fimm. Ekkert er enn vitað um eldsupptök.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert