Búið að opna Víkurveg; búið að opna stofnæðar í borginni

Búið er að opna Víkurveg í Grafarvogi í Reykjavík, samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, en björgunarsveitamenn voru önnum kafnir fram eftir degi að aðstoða fjölda ökumanna sem þar festi bíla sína í snjósköflum. Var brugðið á það ráð að loka veginum á meðan bílar sem sátu fastir voru fjarlægðir og snjóruðningstækjum komið við. Búið er að ryðja stofnæðar og strætisvagnaleiðir á höfuðborgarsvæðinu, en íbúðagötur hafa fæstar verið ruddar enn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert