Ökumönnum bent á að fylgjast með gildistíma ökuleyfa sinna

Lögreglan í Reykjavík beinir þeirri ábendingu til ökumanna að fylgjast með gildistíma ökuleyfa sinna en mikið er um að ökuleyfi ökumanna séu fallin úr gildi. Þannig reyndust fjórir ökumenn sem lögregla stöðvaði í klukkutíma umferðarátaki nú í kvöld vera án gildra ökuleyfa. Þá eru tveir ökumenn, sem stöðvaðir voru í átakinu grunaðir um ölvun við akstur og var annar þeirra sviptur ökuréttindum á staðnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert