SASS fagnar pólitískri samstöðu um Suðurlandsveg

Samgöngunefnd Sambands sunnlenskra sveitarfélaga, SASS, samþykkti á fundi í vikunni ályktun þar sem lýst er ánægju með þá pólitísku samstöðu sem náðst hafi um tvöföldun Suðurlandsvegar á milli Selfoss og Reykjavíkur.

„Áætlun um 2+1 veg er ekki sú framtíðarlausn sem Sunnlendingar geta sætt sig við. Miðað við þá umferðaraukningu sem orðið hefur á veginum undanfarin ár má reikna með að innan 10 ára verði umferðin komin í 15 – 20 þúsund bíla á dag að meðaltali árið um kring og því væri glapræði að byggja veginn ekki upp með lengri framtíð í huga. Í því sambandi bendir nefndin á framkomnar hugmyndir um einkaframkvæmd á veginum, en samkvæmt þeim myndi fjárfestingin greiðast upp á næstu 20 – 30 árum," segir m.a. í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert