Búið að leggja veg að strandstað

Samkvæmt upplýsingum lögreglu er búið að leggja veg niður að strandstað þar sem flutningaskipið Wilson Muuga liggur. Verkinu lauk um klukkan hálf fjögur í nótt og er stefnan tekin á það í dag að reyna dæla olíu úr skipinu. Lögregluvakt er á staðnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert