Krefst fundar í samgöngunefnd vegna flugumferðarstjóra

Jón Bjarnason, þingmaður VG, hefur óskað eftir því að fundur verði kallaður saman í samgöngunefnd Alþingis vegna þeirrar stöðu, sem komin er upp í flugleiðsögn og flugumferðarstjórn í landinu frá og með næstu áramótum.

Í bréfi sem Jón hefur sent Guðmundi Hallvarðssyni, formanni nefndarinnar, er óskað eftir að samgönguráðherra og aðrir, sem beri beina ábyrgð á framvindu þessa máls geri nefndinni grein fyrir stöðu mála. Jafnframt kanni nefndin hvað Alþingi geti gert til að leysa deilu samgönguráðherra við flugumferðarstjóra  og tryggja flugöryggi og flugleiðsögn í höndum íslenskrar flugumferðarstjórnar.

Segir Jón að sú lausn blasi við að falla  frá  eða fresta gildistöku laganna um hlutafélagavæðingu flugumferðarstjórnar frá næstu áramótum og tryggja þar með órofinn ráðningarsamning starfsmanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert