Á 135 kílómetra hraða á Vesturlandsvegi

mbl.is/Júlíus

Ökumaður um tvítugt var tekinn á 135 kílómetra hraða á Vesturlandsvegi til móts við Grafarholt, en þar er 80 kílómetra hámarkshraði. Ökumaðurinn var ekki sviptur ökuleyfi á staðnum, en má eiga von á því að þurfa að greiða myndarlega sekt. Þá var brotist inn í söluturn á Akureyri í nótt, þjófurinn hafði á brott með sér tóbak og símakort, hann náðist ekki en málið er í rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert