Pylsuveislu stolið á Akranesi

Óvenjulegur þjófnaður var tilkynntur til lögreglunnar á Akranesi í gær. Þar var stolið um 20 kg af pylsum og öllu meðlæti, þar á meðal tómatsósu, sinnep, remúlaði og steiktum lauk, úr SS bíl við Vallarbraut. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þarna að verki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert