Hvetja til þess að ónýtum rafhlöðum verði skilað til úrvinnslu

Úrvinnslusjóður hrinti í dag af stað kynningarátaki vegna söfnunar á ónýtum rafhlöðum til úrvinnslu. Markmið átaksins er að fá fleiri til að safna og skila notuðum rafhlöðum, auka vitund almennings um mikilvægi þess að rafhlöðum sé skilað og vekja athygli á að einfalt sé að losna við þær.

Úrvinnslusjóður segir, að rafhlöður eigi ekki að fara í ruslið heldur eigi að skila þeim til úrvinnslu. Hægt er að skila inn ónýtum rafhlöðum á bensínstöðvum og söfnunarstöðvum sveitarfélaga um land allt, auk þess sem hægt er að setja þær í endurvinnslutunnur fyrir flokkað heimilissorp.

Af þeim 161,5 tonnum rafhlaðna sem flutt voru inn til landsins á árinu 2005 var aðeins rúmlega 37 tonnum skilað eða 21% af öllum seldum rafhlöðum hér á landi. Þetta þýðir að rúm 124 tonn af rafhlöðum hafa farið beint í ruslið og því verið urðuð með öðru sorpi.

Rafhlöðum er fargað eða eytt á viðurkenndan hátt hjá aðilum sem hafa starfsleyfi til þess. Frá söfnunarstöðvunum eru rafhlöðurnar fluttar til Efnamóttökunnar eða Hringrásar þar sem þær eru flokkaðar. Hluti þeirra er urðaður, þ.e. þær sem ekki innihalda spilliefni. Rafhlöður sem innihalda spilliefni eru mjög skaðlegar fólki og umhverfi og eru þær sendar í háhitabrennslu til viðurkennds eyðingaraðila í Danmörku. Þar er hitinn sem myndast við brennsluna nýttur til hvort tveggja framleiðslu rafmagns og hitunar vatns sem er notað til húshitunar hjá sveitarfélaginu Nyborg.

Þátttakendur í kynningarátakinu ásamt Úrvinnslusjóði eru Olís, Efnamóttakan, Gámaþjónustan og Hringrás.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert