Skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á konu

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá konu tvívegis í andlitið með þeim afleiðingum að hún nefbrotnaði, augntóft brotnaði og konan bólgnaði mikið í andliti. Einnig fékk hún fleiri áverka.

Í dómnum segir, að af gögnum málsins megi sjá að árás mannsins var að öllu tilefnislaus og ófyrirleitin en hún var framin í byrjun janúar árið 2005. Ekki sé í gögnum málsins að sjá neina skýringu á þeim drætti, sem hafi orðið á málinu fram að útgáfu ákæru.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert