Fornleifarannsóknir vegna nýrra virkjana í Þjórsá hafnar

Þjórsárver.
Þjórsárver. mbl.is/RAX

Í sumar verða gamlar rústir í landi Þjótanda við Þjórsá rannsakaðar, en rannsóknum við Akbraut er nú lokið. Fram kemur á vef Landsvirkjunar að fornleifaskráning við Þjórsá hafi verið framkvæmd í tengslum við mat á umhverfisáhrifum sumrin 2001 og 2002 og í samræmi við úrskurð Fornleifaverndar ríkisins séu fornleifarannsóknir á hluta fornleifanna sem fundust hafnar.

Þá segir að ólíkt öðrum vatnsaflsvirkjunum sem Landsvirkjun hafi byggt þá séu fyrirhugaðar virkjanir í Þjórsá staðsettar í byggð. Af þessu leiði að virkjunarframkvæmdir hafi meiri áhrif á fornleifar en vatnsaflsvirkjanir sem áður hafa verið byggðar.

Í frétt Landsvirkjunar segir jafnframt að markmið rannsóknanna á bæjarstæði Akbrautar hafi verið að kanna til hlítar hvort einhverjar leifar kynnu að leynast undir núverandi húsum, sem rannsaka þyrfti frekar. Grafnir voru 8 prufuskurðir í þessu tilgangi. Engin mannvirki komu í ljós, aðeins vísbendingar um ung mannvistarlög frá 20. öld. Allt bendir til þess að núverandi mannvirki á staðnum hafi nánast þurrkað út öll verksummerki fyrstu húsanna sem þarna voru byggð um miðbik 19. aldar, enda breiða núverandi hús talsvert úr sér og eru flest grafin niður.

Fornleifafræðistofan annast rannsóknir á fornleifum í sumar fyrir Landsvirkjun í samráði við Fornleifavernd ríkisins.

Vefur Landsvirkjunar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert