Króníkufólk fer ekki á DV

Þeir blaðamenn, sem störfuðu á tímaritinu Króníkunni, hafa ákveðið að ráða sig ekki til starfa hjá DV, að Sigríði Dögg Auðunsdóttur, ritstjóra, undanskilinni, sem hefur tekið við starfi umsjónarmanns helgarblaðs DV.

Þegar útgáfufélag DV keypti allt hlutafé í útgáfufélagi Króníkunnar í síðustu viku var tilkynnt að starfsmönnum tímaritsins stæði til boða starf á DV. Samkvæmt upplýsingum mbl.is hafa blaðamennirnir, sem störfuðu á Króníkunni, ákveðið að þiggja ekki þetta boð. Um er að ræða sjö blaðamenn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert